|
Skrifað af Edda Ósk
|
|
Salatblanda Tómata Gúrkur Paprika Avokadó (vel þroskað…dálítið mjúkt) Skera brauðost í litla bita Pastaskrúfur Léttrista furuhnetur á pönnu (enga olíu á pönnuna!) Hlutföllin eru í því magni sem þið viljið… Setja matarolíu og Herbamar út á salatið (Herbamar er sjávarsalt með kryddjurtum, algjör snilld útá allan mat + það er miklu “hollara” en flest annað krydd, ekkert 3krydd, dregur bara fram náttúrulegt bragð matarins!!) - - - - - - - - - - - - Til þess að gera gómsætan kvöldverð úr þessu salati: Rífa niður tilbúinn kjúkling Skera pepperoni stöng í litla bita (gott að mýkja það upp með því að léttsteikja það, bara ca.1mín.) -ATH. BEST er að taka kjarnann úr gúrkunni, hann er ástæðan fyrir því að salatið verður blautt og klessulegt daginn eftir + það breytir engu um bragð, þetta er bara vatn (samkv. hinum nakta kokki) - Það má sleppa einhverju grænmeti eða bæta við…….en það má alls ekki sleppa avokadóinu!!! Og furuhneturnar eru punkturinn yfir Iið!
|