Þú ert hér: Heim arrow Uppskriftir arrow Kjötréttir arrow Kjúklingur arrow Kjúklingasalat Gunnar Þórðar og Toby


Kjúklingasalat Gunnar Þórðar og Toby Prenta
Skrifað af Edda Ósk   

2 kjúklingabringur, skinnlausar
olía til steikingar
2 msk. hunang
½ bolli jómfrúarolía
2 msk. dijon sinnep
½ bolli söxuð steinselja
1 tsk. salt
pipar eftir smekk
3 msk. sesamfræ
1 bolli furuhnetur
2 pokar klettasalat (ef fæst ekki, nota jöklasalat og fl. Í poka og ferskt spínat)

- - - - - - - - - - - -

Steikið eða grillið kjúklingabringu. Blandið saman hunangi, ólífuolíu, sinnepi, steinselju, pipar og salti og smakkið (mjög mikilvægt) Ristið sesamfræ (gleymdi því síðast) og furuhnetur (gleymdi ekki, geðveikt gott) á pönnu. Skerið kjúkl. Í litla bita og blandið saman við sósuna. Látið standa í a.m.k. 45 mín. Setjið kjúkl. og sósuna á salatið og blandið vel, strá ristuðum hnetum og sesamfr. yfir. Bera fram með snittubrauði og góðu víni ef maður vill. T.d. þurru hvítvíni.

 
< Fyrri   Næsti >