Þú ert hér: Heim arrow Uppskriftir arrow Kjötréttir arrow Kjúklingur arrow Kjúklingastroganoff


Kjúklingastroganoff Prenta
Skrifað af Edda Ósk   

1,8 kg kjúklingalæri, frosin, bein- & skinnlaus
240g sveppir, sneiddir
4 1/2 dl soðið vatn (sjóðandi)
3 3/4 dl frosið brokkólí
2 dl ídýfa m/laukbragði
1 rauð parika, sneidd
1 stór laukur, sneiddur
1 pk Uncle Ben´s Country Inn
Rice Pilaf
Krydd eftir smekk

- - - - - - - - - - - -

Hitið ofninn í 220°c. Setjið í eldfast mót (m/loki) kjúkling, hrísgrjón, krydd, lauk, sveppi og papriku. Hellið sjóðandi vatni yfir og blandið öllu vel saman.
Setjið lokið yfir og hitið í 30 mín. Bætið þá brokkólí út í og hitið áfram í 10 mín undir loki.
Takið úr ofninum og hrærið ídýfunni út í. Látið standa með loki yfir í 5 mín. eða þar til vökvinn hefur gufað upp.

Hollráð: Gott er að brúna kjúklinginn dálítið á pönnu áður.
(1msk. af olíu f. 4). Uppskriftin er fyrir 4

 
< Fyrri   Næsti >