Þú ert hér: Heim arrow Uppskriftir arrow Kjötréttir arrow Kjúklingur arrow Kjúklingur í chilli, engiferi, hvítlauk og lime


Kjúklingur í chilli, engiferi, hvítlauk og lime Prenta
Skrifað af Edda Ósk   

3-4 kjúkl.bringur

Lögur:
1 rauður chilli pipar (fræ úr og skorið í smáa strimla)
1 grænn chilli pipar (fræ úr og skorið í smáa strimla)
Engifer 2-3 cm. saxað smátt eða rifið
Lime - safi úr 2 stk.
Hvítlaukur 7-8 rif, kramin
Olífuolía, til uppfyllingar

- - - - - - - - - - - -

Lögur:
Blandið chilli, engiferi, hvítlauki saman í olíu. Kreistið vel Lime-safa út í. Magn innihalds fer eftir smekk, þ.e. hversu mikið af chilli osfrv.

Kjúklingabringur:
S kerið raufar í kjötið til að hleypa bragðinu betur inn. Skellið keti í fat og hellið leginum yfir þannig að fljóti ágætlega (notið því passlega stórt/lítið fat).
Látið standa a.m.k. í 3-4 klst. og snúið ef þarf. Grillið eða setjið í ofn.

Meðlæti:
Gott salat og grjón. Einnig má nota kjúkl.leggi, svínakjöt og ýmislegt fiskmeti, t.d. er humar mjög góður í þessum legi.

 
< Fyrri   Næsti >