Þú ert hér: Heim arrow Uppskriftir arrow Kjötréttir arrow Kjúklingur arrow Kornflakes-kjúklingur


Kornflakes-kjúklingur Prenta
Skrifað af Edda Ósk   

1 kjúklingur hlutaður
1 lítill pk Kellogs kornflakes
1/4 l rjómi
1/2 ds. niðursoðnir sveppir
kjúklingakrydd eftir smekk

- - - - - - - - - - - -

Blandið saman, í eldfast fat með loki, kornflakes, rjóma og sveppum (setjið sveppasoðið með).
Hlutið kjúkling og kryddið með kjúklingakryddinu eftir smekk.
Raðið kjúklingabitunum ofan á kornflakes blönduna lokið forminu og bakið í ca 1 klst við 180-200°C

Berið fram með pönnusteiktum kartöfluskífum og góðu salati. Kornflakesjukkið notað sem meðlæti.

 
< Fyrri   Næsti >