|
Nachos kjúklingur á salatbeði með Quesadillas |
|
|
Skrifað af Edda Ósk
|
|
4 stk. kjúklingabringur 50 gr. Santa Maria Tortilla flögur (muldar) 1/2 dl. hveiti 2 stk. egg, hrærð Olía til steikingar Quesadillas: 2 stk. Santa Maria Wrap Tortilla 1 dl. rifinn ostur Olía til steikingar Meðlæti: 2 dl. Santa Maria salsasósa Salatblöð, nokkrar tegundir (t.d. rósakál, ísberg, rómverskt, ferskt rauðkál, lollo rosso) - - - - - - - - - - - - Kjúklingurinn: Veltið kjúklingnum upp úr hveitinu, egginu, og loks muldu flögunum. Hitið olíu á pönnu við háan hita og steikið kjúklinginn. Setjið hann síðan í ofn og bakið við 175° í 5 mínútur, eða þar til kjötið er gegnumsteikt. Quesadillas: Stráið ostinum yfir aðra tortilluna og leggið hina yfir. Hitið smá olíu á pönnu og steikið tortillu samlokuna á báðum hliðum. Skerið síðan í þríhyrnda bita (Quesadillas). Setjið kjúklinginn ofan á salatið og berið fram með salsasósunni og Quesadillas.
|