Þú ert hér: Heim arrow Uppskriftir arrow Kjötréttir arrow Kjúklingur arrow Nachos kjúklingur með osti


Nachos kjúklingur með osti Prenta
Skrifað af Edda Ósk   

4 kjúklingabringur
100 gr. rifinn Cheddar ostur
100 gr. rifinn Monterey Jack ostur
1 poki Santa Maria Tortilla flögur (salt, chilli eða osta), muldar
2 stór egg
2 msk. mjólk

- - - - - - - - - - - -

Meðlæti:
Salsasósa, guacamole og sýrður rjómi.
Forhitið ofninn í 180°C. Setjið eggin og mjólkina í grunnan disk og hrærið saman. Dýfið kjúklingnum ofan í eggjablönduna og veltið honum svo upp úr muldu tortilla flögunum. Bakið í ofni í 35 til 40 mín., eða þar til kjúklingurinn er steiktur í gegn. Setjið ost, salsasósu, guacamole og sýrðan rjóma ofan á og berið fram.

 
< Fyrri   Næsti >