Þú ert hér: Heim arrow Uppskriftir arrow Kjötréttir arrow Kjúklingur arrow Ritzkjúklingur


Ritzkjúklingur Prenta
Skrifað af Edda Ósk   

Kjúklingur
Ritz kex
Smjör
26% Ostur
grófmalaður pipar
Season All (þarf ekki)

- - - - - - - - - - - -

Kjúklingurinn er bútaður niður og velt upp úr bræddu smjöri. Svo er honum velt upp úr muldu Ritzkexi (pipar bætt Í Ritz mylsnuna) og settur í eldfastmót.
Þá er niðurrifnum osti dreift jafnt yfir hann, gott er að hafa mikinn rifinn ost.

Eldað við 180 gráður C í u.þ.b. 45 mín. Borið fram með hrísgrjónum og Rjómalöguðu eplasalati. Drekkist alltaf með coke eða cola.

Rjómalagað eplasalat:
1 egg og 1/2 msk sykur þeytt saman í sér skál, svo rjóminn í annarri og svo blandað saman og svo eplin, helst græn.

 
< Fyrri   Næsti >