Þú ert hér: Heim arrow Uppskriftir arrow Kjötréttir arrow Kjúklingur arrow Tagliatelle kjúklingur


Tagliatelle kjúklingur Prenta
Skrifað af Edda Ósk   

720 g ferskar kjúklingabringur
400 g tagliatelle pasta
salt
pipar

Sósa:
2 dl jómfrúar ólífuolía
4 msk steinselja, fersk
4 msk basilíka, fersk
2 msk furuhnetur
1 msk parmigiano ostur, rifinn
2 stk hvítlauksrif
pipar
salt

- - - - - - - - - - - -

Saxið bæði basilíkuna og steinseljuna og rífið síðan parmigiano ostinn.
Kryddið kjúklingabringurnar með salti og pipar og brúnið á heitri pönnu stutta stund. Bakið þær síðan í ofni við 165°C í 25 mínútur. Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningunum á umbúðunum. Sigtið vatnið af pastanu eftir suðu og blandið sósunni saman við pastað. Skerið kjúklinginn í bita og berið hann fram með pastanu.

Sósa:
Setjið allt sem fara á í sósuna saman í matvinnsluvél og maukið.
Berið fram með smjörsteiktum ætiþistlum og tómötum.

 
< Fyrri   Næsti >