|
Ungverskur Paprikukjúklingur |
|
|
Skrifað af Edda Ósk
|
|
Það sem þarf: (Uppskriftin miðast við fjóra) 1 kjúklingur 1100 gr. 50 gr. hveiti. 425 gr. sveppir. 3 dl. mjólk. 1 fersk paprika. 3 tsk. paprikuduft. 4 msk. tomatpurree. 1,5 dl rjómi. 1 laukur. 1 sítróna. - - - - - - - - - - - - Kjúklingurinn steiktur heill í 30 mín til 1 klst. og skorinn niður í ca. 8 hluta. Laukur, paprika, sveppir, paprikuduft og tómatpurree ristað á pönnu eða í potti og látið krauma vel. 50 gr. af hveiti stráð yfir það sem er á pönnunni - pottinum og hrært vel í öllu saman. Síðan er mjólkinni og rjómanum bætt út í og látið sjóða við vægan hita í ca. 10 mín. Kjúklingabitarnir settir út í og sítrónan kreist yfir. Látið malla í 5 til 10 mín. (óþarfi ef kjúklingurinn er vel steiktur). Borið fram með hrísgrjónum sem eru soðin á venjulegan hátt. Það þarf að smakka sósuna til eins og gengur, bæta salti við, og passa sig á að láta ekki of mikið af tómatpúrree, þá verður tómatbragðið yfirgnæfandi. Við notum alltaf dósasveppi í staðinn fyrir nýja, vegna þess að sósan vill verða svo ljót á litinn ef nýir sveppir eru notaðir (sjónmengun).
|