|
Skrifað af Edda Ósk
|
|
2 kjúklingabringur. Marínering: 1-2 msk sojasósa 400 ml kókosmjólk 1 stk rauður chili-pipar 25 gr fersk engiferrót 1 sneið ananas 1 bréf kóríanderlauf börkur af 1 límónu (lime) 50 gr púðursykur 1 hvítlauksrif. - - - - - - - - - - - -
Kljúfið chili-pipar í tvennt og hreinsið fræin innan úr. Flysjið engiferrót. Rífið niður ysta lagið af límónuberkinum. Setjið kókosmjólkina, chili-piparinn, engiferrótina, ananas-sneiðina, límónubörkinn, kóríanderlaufin, hvítlauksrifið, púðursykurinn og sojasósuna í matvinnsluvél og maukið saman. Skerið lauslega í kjúklingabringurnar og látið þær liggja í maríneringunni í minnst 2 tíma í kæli. Brúnið bringurnar létt á báðum hliðum á pönnu (helst grillpönnu) og ofnsteikið að því loknu við 180C í 20-25 mín. Maríneringinn er síðan hituð í potti þar til hún hefur náð suðumarki og er notuð sem sósa með. Tilvalið meðlæti með þessum rétti er kúskús,eða hrísgrjón,og grænmeti að eigin vali.
|