Þú ert hér: Heim
Uppskriftir
Kjötréttir
Kjúklingur
Thailenskur réttur með kjúkling, rækjum og hrísgrjónum
Uppskriftir
Kjötréttir
Kjúklingur
Thailenskur réttur með kjúkling, rækjum og hrísgrjónum | Thailenskur réttur með kjúkling, rækjum og hrísgrjónum |
|
| Skrifað af Edda Ósk | |
|
Þessi uppskrift er fyrir fjóra: 225 (1 bolli) hrísgrjón 2 egg 30ml (2 msk) grænmetisolía 1 grænt chili 2 vorlaukar, smátt skornir 2 hvítlauksgeirar, kramdir 225g eldaður kjúklingur 225g rækjur 45ml (3 msk) dökk sojasósa rækjukex, borið fram sem meðlæti - - - - - - - - - - - - - - - Skolið hrísgrjónin og eldið í 10-12 mín í 475ml (2 bollum) af vatni. Pískið eggin lítillega, hitið 1 msk af olíu á pönnu og hellið eggjunum út á. Hrærið á meðan eggin eru steikt létt, takið þau svo af og setjið í skál þegar þau eru farin að steikjast (klessast saman). Fjarlægið fræin úr chiliinu og brytjið það smátt. Setjið vorlauk, chili og hvítlauk í blandara eða matvinnsluvél og vinnið þar til verður að þykku mauki. Hitið wokpönnu og setjið afganginn af olíunni á. Þegar olían er orðin heit, setjið þá chilimaukið út á og steikið í 1 mínútu. Hér tók ég maukið af pönnunni og steikti kjúklinginn, bætti svo eggjunum, maukinu og hrísgrjónunum við og steikti í 3-4 mínútur. Blandið sojasósunni við. Berið fram með rækjukexi ef vill |
| < Fyrri | Næsti > |
|---|





