Þú ert hér: Heim arrow Uppskriftir arrow Kjötréttir arrow Kjúklingur arrow Mexíkóskur ofnréttur


Mexíkóskur ofnréttur Prenta
Skrifað af Edda Ósk   
sunnudagur, 06 júlí 2008

Kjúklingabringur
Rjómaostur
Salsasósa
Sýrður rjómi
Ostasósa
Nachos
Rifinn ostur

- - - - - - - - - - - - - - -

Skerið kjúklingabringurnar í munnstóra bita, og kryddið þær með góðu kryddi (ég notaði salt, pipar, kjúklingakrydd og krydd lífsins). Steikið á pönnu þar til þær eru orðnar vel steiktar í gegn. Smyrjið botninn á eldföstu móti með rjómaostinum, dreifið kjúklingabringunum jafnt ofaná, salsasósuna ofaná kjúklinginn, næst sýrða rjómanum, og þarnæst ostasósunni. Myljið niður nachos og dreifið ofaná allt, og setjið rifinn ost þar yfir.
Bakið í ofni við 200° í ca 10 mínútur, eða þar til allt er orðið heitt og osturinn er bráðnaður.
 

 
< Fyrri   Næsti >