Þú ert hér: Heim arrow Uppskriftir arrow Kjötréttir arrow Kjúklingur arrow Hollur kjúklingaréttur með bragði


Hollur kjúklingaréttur með bragði Prenta
Skrifað af Edda Ósk   

2 kjúklingabringur
Hálft zuccini
Tvær rauðar paprikur
4-5 stórir svepppir
Þumalstærð af engifer
Einn meðalstór laukur
4-5 msk ostrusósa
Smá sletta ljós sojasósa
2 msk hunang
2 msk karrý
1 msk paprikukrydd
Pipar

-----------------------------------

Skerið fituna af kjúklingabringunum og skerið þær niður í litla bita. Setjið í skál og bætið við ostrusósu, hunangi, karrý, paprikukryddi, ljósu sojasósunni og pipar. Blandið öllu vel saman og látið bíða í klukkutíma. Í millitíðinni getur þú brytjað zuccini, paprikuna og sveppina. Skerðu laukinn og engiferið smátt.

Hitið örlítið af ólífuolíu á stórri pönnu. Steikið laukinn og engiferið á meðalhita þar sem laukurinn verður glær. Bætið við grænmetinu og steikið. Hér má bæta við smávegis af ljósri sojasósu en það er ekki nauðsynlegt. Þegar grænmetið er steikt bætið þá kjúklingabringunum við á pönnuna með eins mikið af marineringunni og þú nærð úr skálinni. Blandið vel við grænmetið sem var þegar á pönnunni og steikið á meðalhita þar til bringurnar eru orðnar steiktar í gegn. Hrærið öðru hverju. Berið fram með hrísgrjónum.

 
< Fyrri   Næsti >