|
Tælenskar kjúklingabollur |
|
|
Skrifað af Edda Ósk
|
|
Kjúklingabollur, hráefni: 2- 3 kjúklingabringur 1 bolli af brauðmylsnu (ferskri) 4 vorlaukar 1 msk. mulið kóríander 2 tsk. sesamfræ 1 bolli ferskt kóríander (brytjað smátt) 3 msk. 'Sweet Chilli' sósu 1 - 2 msk. sítrónusafi 1 ferskt chili (fræhreinsað og brytjað smátt) Olía til steikingar.
- - - - - - - - - - - - - - - - - -
Aðferð: Saxið niður kjúklingabringur niður í hakk annað hvort með hníf eða í matvinnsluvél. Best er að nota heil kóríander fræ og mylja þau niður í mortél, ef slíkt er ekki fyrir hendi þá er tilbúin mulinn kóríander ekkert verri. Setjið 2 brauðsneiðar (án skorpu) í matvinnsluvél, saxið niður mjög smátt vorlauk, ferska kóríanderinn og brytjið niður og fræhreinsið chiliíð.
Vinnið þetta vel saman í skál og bætið sítrónusafa og "Sweet chilli" sósu og hrærið vel. Gerið úr þessu litlar bollur og steikið í djúpri pönnu í olíunni. Hitið ofninn í 200° og setjið svo að lokum bollurnar inní hann í 5 mín. Stærri bollur eða ef gerðir eru hamborgarar geta tekið allt að 10 - 15 mín.
"Sweet Chilli" sósa - hráefni: 1 bolli af vatni 1 bolli af strásykri 4 - 5 chilli 1/2 hvítlauksgeiri
Aðferð: Setjið vatn og sykur í pott og hitið þangað til vökvinn er orðinn glær. Saxið chillíið (ekki fjarlægja fræin) og hvítlauk gróft niður og bætið útí. Setjið þetta svo í matvinnsluvél og blandið vel. Sósan er tilbúinn. Ath: farið varlega þegar þetta er sett í matvinnsluvél, því sósan verður MJÖG heit.Einnig verður hún mjög sterk fyrst, en með tímanum dofnar hún.
|