| General Tao kjúklingur (videouppskrift) |
|
| Skrifað af Edda Ósk | |
|
Þessi réttur er einn af vinsælustu réttunum á kínverskum veitingastöðum í dag. Uppskriftin er af amerískum uppruna. 3 kjúklingabringur (900 gr) 3 vorlaukar 2 bollar eða meira af hnetuolíu 1/3 bolli maíssterkja Marinering: 1/4 bolli sojasósa Sósa: 1 1/2 bolli kjúklingasoð 1/2 bolli sykur 1/3 bolli sojasósa 2 msk hvítt edit 2 msk sherry 1/2 msk sterk chili hvítlauks sósa Deig: 1 bolli hveiti 2 egg 1 bolli maíssterkja - - - - - - - - - - - - 1. Fjarlægið alla fituna af kjúklingnum og skerið hverja bringu í munnstóra bita. Setjið bitana í ílát með loki til að marinerast. 2. Bætið soja marineringunni við og látið standa við stofuhita í um 20 til 30 mínútur. 3. Finnið til hin innihaldsefnin á meðan kjúklingurinn marinerast. Skolið laukinn undir köldu vatni og þurrkið með bréfþurrku. Skerið rúmlega sentimeter af rótinni og toppnum og hendið. Skerið laukinn í litla bita og setjið til hliðar. 4. Setjið öll innihaldsefnin fyrir sósuna í stóra skál. Hrærið vel saman og setjið svo til hliðar. 5. Setjið 1/3 bolla af maíssterkju í stóran bolla og blandið við smá vatni þar til maíssterkjan leysist upp. Setjið til hliðar. 6. Setjið upp aðstöðu til að húða kjúklinginn. Setjið hveitið í eina skál og maíssterkjuna í aðra. Brjótið eggin í þriðju skálina og þeytið létt. Setjið upp þannig að þú hefur hveitiskálina við hliðina á eggjaskálinni, og svo maíssterkjuskálina. Setjið disk við hliðina á maíssterkjuskálinni til að raða húðaða kjúklingnum á. 7. Dýfið nú marineraða kjúklingnum í hveitið, svo eggið, og að lokum maíssterkjuna. Setjið tilbúnu bitana á diskinn og reynið að láta þá ekki snertast. Þeir munu festast saman ef þeir eru of þétt saman. Ef þeir festast saman getur þú tekið þá í sundur með gaffli eða prjónum áður en þú eldar þá. 8. Þegar allur kjúklingurinn er húðaður, hitið þá 2 bolla af hnetuolíu á háum hita. Ef (wok) pannan er mjög stór bættu þá við meiri olíu, eða minni olíu ef þú ert með litla pönnu. Við viljum rétt svo nóg til að kjúklingurinn fari á kaf í olíunni. 9. Þegar olían er orðin heit, setjið þá 1/3 af bitunum á pönnuna. Munið að yfirfylla ekki pönnuna, setjið bara nokkra bita í einu. 10. Eldið í um 10 mínútur eða þar til kjúklingurinn hefur brúnast. Takið bitana af pönnunni með einhvers konar ausu eða spaða með götum og setjið þá á disk með bréfþurrkum neðst. 11. Hellið olíunni í annað ílát til að geyma til framtíðar notkunar, og þurrkið pönnuna. 12. Setjið pönnuna á hellu og hitið sósublönduna á háum hita. 13. Bætið maíssterkjunni við þegar sósan er farin að sjóða. Hrærið þar til hún þykknar og bætið þá kjúklingnum fljótt við. Þessi sósa þykknar hratt þannig að við viljum passa að húða allan kjúklinginn áður en hún verður of þykk. Slökkvið á hitanum og hrærið þar til allur kjúklingurinn er húðaður. 14. Bætið vorlauknum við og haldið áfram að hræra. Berið fram með hrísgrjónum. Þetta er 4 skammtar. |
| < Fyrri | Næsti > |
|---|




Uppskriftir 
