Þú ert hér: Heim arrow Uppskriftir arrow Pizzur og pasta arrow Pizza arrow Brauðstangir


Brauðstangir Prenta
Skrifað af Edda Ósk   
1 msk ger
1 1/2 bolli (350 ml) volgt vatn
1 msk sykur
1/2 msk salt
30 ml olía
4 bollar hveiti
1/4 bolli smjör, brætt (3/4 tsk hvítlaukssalt bætt við ef þú vilt hvítlauksbragð)

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

1. Setjið gerið, 1/2 bolla af vatni og sykurinn í stóra skál og látið gerið leysast upp

2. Látið standa í 5 mínútur

3. Bætið við restinni af innihaldsefnunum, fyrir utan smjörið

4. Hrærið í deig og hnoðið þar til það verður mjúkt, teygjanlegt og örlítið klístrað (fínt að nota hrærivél ef þið eigið)

5. Setjið í smurða skál með loki eða blautu viskastykki og látið hefast þar til deigið hefur tvöfaldast, í ca klukkutíma

6. Stráið hveiti og fletjið deigið í 30x45cm ferhyrning

7. Penslið með brædda smjörinu

8. Skerið deigið í tvennt lóðrétt, og svo lárétt í 8 ræmur (16 stangir)

9. Á þessum tímapunkti getur þú gert eftirfarandi afbrigði:

10. Ostabrauðstangir: Veltið smjörhliðinni af brauðstönginni uppúr nýrifnum parmesan osti. Snúið brauðstönginni nokkrum sinnum (til að fá mynstur) og setjið á plötu með bökunarpappír. Hyljið og látið hefast í 30 mínútur eða þar til þær hafa tvöfaldast. Bakið og penslið á eftir baksturinn með restinni af hvítlaukssmjörinu.

11. Hvítlauksbrauðstangir: Snúið brauðstöngum (til að fá mynstur) sem er búið að pensla með hvítlaukssmjöri nú þegar. Setjið á plötu með bökunarpappír og látið hefast í 30 mínútur. Bakið og penslið á eftir baksturinn með hvítlaukssmjöri.

12. Pizzastangir: Látið penslaðar stangirnar hefast á smjörpappír í 30 mínútur. Setjið pizzasósu ofaná og svo pepperoni. Bætið rifnum ofsti ofaná þegar 5 mínútur eru eftir af bökunartímuanum.


* Látið brauðstangirnar hefast í 30 mínútur áður en þær eru bakaðar. Brauðstangirnar eiga að bakast í 15-18 mínútur við 180°C (350° F) eða þar til þær eru gullinbrúnar.
 
< Fyrri   Næsti >