Þú ert hér: Heim arrow Uppskriftir arrow Kínverskt arrow Kínverskur hnetukjúklingur


Kínverskur hnetukjúklingur Prenta
Skrifað af Edda Ósk   

Amerísk útgáfa af hnetukjúkling. Sósan er þykk og rétturinn saðsamur og mjöööög góður.

3 kjúklingabringur
1 poki (um 340 gr) frosið grænmeti

Marinering:
½ msk soja sósa
½ msk hrísgrjónaedit (rice wine vinegar)

1 ½ msk hnetuolía
3 msk hnetusmjör
1 msk sterk chili hvítlauks sósa
6 msk hrísgrjónaedit (rice wine vinegar)
3 msk venjuleg soja sósa
3 msk dökk soja sósa
1 bolli salthnetur
2 msk sykur
½ bolli kjúklingasoð
2 msk maíssterkja

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

  1. Fjarlægið alla fituna af kjúklingnum og skerið hverja bringu í munnstóra bita.

  2. Marinerið kjúklinginn í 30 mínútur við stofuhita í 1/2 msk af soja sósu og 1/2 msk af hrísgrjónaediki.

  3. Setjið frosna grænmetið í örbylgjuofn í um 5 mínútur eða rétt til að hita. Það má nota hvaða frosna grænmeti sem ykkur finnst gott. Passið bara að það sé rétt hitað en ekki ofeldað.

  4. Þegar grænmetið er orðið heitt og kjúklingurinn marineraður hitið þá olíuna á háum hita.

  5. Setjið kjúklinginn á pönnuna og eldið þar til hann brúnast, um 5 mínútur. Setjið þá kjúklinginn í skál og setjið til hliðar og geymið restina af olíunni á pönnunni. Ef það er engin eða lítil olía eftir á pönnunni, bætið þá matskeið af olíu á pönnuna.

  6. Bætið hnetusmjörinu við olíuna og hrærið stöðugt á háum hita þar til það hefur bráðnað.

  7. Þegar hnetusmjörið er alveg bráðnað bætið þá við sterku chili hvítlaukssósunni, edikinu, soja sósunum hnetunum, sykrinum og kjúklingasoðinu við. Eldið á háum hita í 3 mínútur.

  8. Bætið grænmetinu við og hrærið í um 3 míntútur í viðbót. Bætið þá kjúklinginum við og látið suðuna koma upp.

  9. Leysið maíssterkjuna upp í smá vatni og bætið við á pönnuna. Hrærið þar til sósan þykknar.

  10. Berið fram með hrísgrjónum og njótið! Þetta eru 3 góðir skammtar.
 
< Fyrri   Næsti >