|
Skrifađ af Edda Ósk
|
|

Þessi uppskrift er hálf heimilislaus þar sem hún passar ekki alveg í kökur. Þetta eru stórgóðar orkustangir sem er gott að borða í morgunmat eða sem hollt milli mála snakk. Hentugt að pakka þessu í plast og taka með sér í vinnu/skólann. Mælt er með því að geyma þær í ísskáp.
3 bollar heilhveiti morgunkorn (puffed whole grain cereal)
1/2 bolli saxaðar hnetur eða fræ (eða blanda)
1/2 bolli (eða allt að 3/4 bollum) smátt skornir þurrkaðir ávextir (t.d. ber, bananar, ferskjur...)
3 msk mulin hörfræ
1/3 bolli mjúkt hnetusmjör
1/2 bolli hunang
- - - - - - - - - - - - - - -
Hitið ofninn í 180° C (350° F). Klæðið brownies form (23x23cm ca) með álpappír og spreyið með non-stick cooking spray.
Blandið saman í stórri skál: morgunkorninu, hnetunum, þurrkuðu ávöxtunum og hörfræjunum. Setjið til hliðar.
Setjið hnetusmjörið og hunangið í lítinn pott og bræðið saman. Hrærið vel saman. Hellið saman við morgunkornsblönduna og blandið öllu vel saman.
Þjappið blöndunni vel í formið, gott er að nota álpappír til að pressa niður. Bakið í 10 mínútur eða þar til þetta er orðið gullinbrúnt á hliðunum.
Látið kólna alveg áður en þið skerið niður í 12 bita. Gott er að pakka stöngunum í plast og geyma í ísskáp.
|