| Súrsćtt svínakjöt (videouppskrift) |
|
| Skrifađ af Edda Ósk | |
|
3 beinlausar svínakótilettur (680 gr)
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - 1. Fjarlægið alla fituna af kjötinu og skerið í munnstóra bita, setjið í ílát til að marinerast. 2. Marinerið kjötið í skrefum með því að bæta fyrst við saltinu, soja sósunni og sherry og hrærið. 3. Bætið næst við eggjahvítunni, hrærið varlega og hjúpið alla bitana. 4. Stráið maíssterkjunni yfir alla bitana þannig að allir bitarnir hjúpist. 5. Bætið olíunni við og hrærið. Látið sitja við stofuhita í 20-30 mínútur. Undirbúið grænmetið á meðan kjötið marinerast. 6. Fjarlægið frækjarnana úr paprikunum og skerið báðar paprikurnar í tvennt. Skerið þær svo í litla bita og setjið til hliðar. Til að mýkja þær má setja þær í ílát með vatn og setja í örbylgjuofn í 2 mínútur. 7. Skerið endana af lauknum og flysjið. Skerið í litla bita og setjið til hliðar. 8. Undirbúið sósuna með því að hræra saman edikinu, sykrinum, engiferinu, soja sósunni og tómatsósunni í skál. 9. Setjið maíssterkjuna í lítinn bolla og leysið upp í smá vatni. 10. Þegar kjötið hefur marinerast hitið þá 2-3 bolla af hnetuolíu á wok pönnu. Þegar olían er orðin heit er kjötbitunum dýft í og látið steikjast í smástund, eða þar til kjötið verður ljósbrúnt. Setjið kjötið til hliðar eftir þetta. 11. Skiljið smá olíu eftir á pönnunni og steikið laukinn fyrst í 1-2 mínútur, bætið svo við paprikunni og steikið í mínútu í viðbót. Bætið kjötinu við. 12. Bætið sósunni við og hrærið þar til hún fer að sjóða. Bætið þá maíssterkjunni við og hrærið Látið sósuna krauma þar til hún þykknar og hrærið þá aftur þannig að allt hjúpist vel. 13. Berið fram með hrísgrjónum. Þetta eru 3 stórir skammtar.
|
| < Fyrri | Nćsti > |
|---|




Uppskriftir 
