|
Cashew Kung Pao kjúklingur |
|
|
Skrifað af Edda Ósk
|
|
þriðjudagur, 10 nóvember 2009 |
|
Uppskrift af margret.is
500-750 g beinlaus kjúklingur.
5 msk soya sósa
2 msk sherry
1 msk maísmjöl
2 tsk hrásykur
2 msk hvítvínsedik
2 tsk sesamolía
1/3 bolli vatn
3/4 bolli cashew hnetur
4 vorlaukar
1/4 tsk þurrkaðar chili flögur (eftir smekk)
2 msk olía til steikingar
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Skerið kjúkling í smáa bita.
Blandið saman 1 mtsk af soya sósu, sherry og maísmjöli í skál. Hellið yfir kjúklinginn til að marinera í allt að 30 mínútur.
Í
aðra skál er blandað saman; sykri, ediki, sesam olíu og vatni og
restinni af soya sósunni (4 mtsk). Skerið vorlaukin í u.þ.b. cm búta.
Skiljið í sundur hvíta hlutann frá þeim græna.
Hitið 1 mtsk af
olíu á Wok pönnu. Steikið cashew hnetur þar til þær verða gylltar, í
u.þ.b. 1 mínútu. Setjið cashew hnetur til hliðaar. Setjið síðan aðra
mtsk af olíu á Wokina og steikið hvíta hlutann af vorlauknum með chili
flögunum. Setjið meira chili ef rétturinn á að vera sterkur. Steikið í
u.þ.b. hálfa mínútu.
Passið að hitinn á Wokinni sé í botni. Bætið út á Wokina kjúklingnum og steikið í 1-2 mínútur. Bætið síðan vökvanum út í. Síðan græna hlutanum af vorlauknum og cashew hnetunum. Hrærið í u.þ.b mínútu. Berið fram með gufusoðnum hrísgrjónum.
Mér finnst best að kaupa Basmati hrísgrjón frá Tilda.
Ég skola þau upp úr köldu vatni. Set síðan 1 bolla af hrísgrjónum á
móti 2 af vatni. Smá himalaya salt eða sjávarsalt og nokkra dropa af
sesamolíu. Læt suðuna koma upp og stilli á lægsta straum í 15 mín.
Síðan slekk ég undir þeim og læt þau standa í 15-20 mín. Ég passa að
opna aldrei lokið. þannig fær maður góð "klístruð" gufusoðin hrísgrjón
sem er gaman að borða með kínaprjónum!
|