|
Skrifað af Edda Ósk
|
|
700 g magurt nautakjöt
Marinering:
1 msk soja sósa
1 msk sherry
1/4 tsk salt
1/2 msk sykur
2 msk maíssterkja
6 msk teriyaki sósa
1 msk hunang
1/2 tsk hvítlaukssalt
2 tsk sykur
2 msk hnetuolía
(Hugmyndir að grænmeti til að bæta út í: sveppir, paprika, laukur)
- - - - - - - - - - - -
1. Fjarlægið fituna af kjötinu og skerið í mjóar ræmur. Setjið í stórt ílát með loki til að marinerast.
2. Blandið marineringunni með höndunum saman við kjötið í eftirfarandi röð. Fyrst soja sósunni og sherry og hjúpið alla bitana vel. Stráið svo salti og sykri vel saman við og blandið saman. Látið marinerast við stofuhita í klukkustund.
3. Setjið maíssterkjuna og smá vatn í lítinn bolla og hrærið saman þar til maíssterkjan leysist upp. Setjið til hliðar.
4. Blandið saman teriyaki sósu, hunangi, hvítlaukssalti og sykri í stórum bolla. Hrærið vel þar til hunangið hefur blandast saman við sósuna.
5. Skerið niður sveppi, papriku og lauk ef þið viljið hafa það með og setjið í skál.
6. Þegar kjötið hefur marinerast hitið þá olíuna á wok pönnu á háum hita.
7. Steikið grænmetið létt í 1-2 mínútur, takið af pönnunni og setjið í skál til hliðar.
8. Bætið aðeins meiri olíu á pönnuna og setjið kjötið á pönnuna þegar olían er orðin heit og steikið í um 2-3 mínútur. Bætið þá grænmetinu við.
9. Blandið teriyaki sósunni við og steikið í mínútu í viðbót og passið að blanda öllu vel saman. Bætið svo við maíssterkjublöndunni og hrærið þar til sósan hefur þykknað.
10. Berið fram með hrísgrjónum.
|