|
Skrifað af Edda Ósk
|
|
1/2 bolli smjör 1/2 bolli smjörlíki 1 bolli púðursykur 2 egg 3 tsk. vanilludropar 2 3/4 bollar hveiti 2 tsk. lyftiduft 1 tsk. salt 2 bollar af súkkulaðidropum 1 bolli af valhnetum (eða einhverjum góðum hnetum)
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Setjið öll þurrefni í skál og blandið saman. Hellið svo bræddu smjöri, smjörlíki, eggi og vanillu dropum saman við vinnið vel saman. Látið standa í kæliskáp í klukkutíma áður en litlar kúlur eru mótaðar úr deiginu, hafið þær fremur litlar þar sem þetta lyftir sér mjög vel. Forhitið ofnin í 180°C og bakið í 10 - 12 mín, eða þar til þetta er orðið gullin brúnt. Þetta er sem sé grunn uppskriftin af smákökunum sem Subway selur, þær eru auðvitað ekki nákvæmlega eins, en alveg furðu nálægt því. Ég prófaði til dæmis að nota pecanhnetur og smarties í mínar og kom það afspyrnu vel út! Hafið í huga að geyma þær helst í pokum, þar sem þær þorna fljótt og verða harðar.
|