Daim ostakaka
Kökur

Daim ostakaka

Æðislega góð og einföld nammiostakaka

Botn:
200 gr súkkulaðikex (Homeblest er best)
70 gr smjör

Fylling:
300 gr rjómaostur
1 dl sykur
2 msk mjög sterkt kaffi (sem búið er að laga)
2 dl rjómi, þeyttur
75 gr Daim kúlur (ca einn poki)

Skraut:
25 gr Daim kúlur

– – – – – – – – – – – –

Botn:
Myljið súkkulaðikexið mjög smátt, bræðið smjörið, bætið súkkulaðikexinu út í smjörið og hrærið vel saman.
Þessu er svo þrýst í botninn á álmóti.

Fylling:
Hrærið ost og sykur, blandið kaffinu saman við, síðan þeyttum rjóma og Daim kúlum. Setjið fyllinguna yfir kexmylsnuna og kælið.

Skraut:
Stráið Daim kúlum yfir.

Gott er að búa kökuna til daginn áður en á að borða hana. En hún verður síður en svo verri eftir 2 daga.


Please follow and like us: