Uppskrift frá allskonar.is
Þetta nammi er afar fljótlegt og meira að segja nokkuð hollt líka!
14 döðlur, steinlausar
80gr kókosmjöl
100gr möndlur
1 msk kókosolía
4 msk kakóduft
1 msk hlynsýróp
———————-
Settu öll innihaldsefninn í blandara og maukaðu saman í 1 mínútu.
Láttu kólna í ísskáp í 10 mínútur, þá er auðveldara að móta kúlur úr deiginu.
Búðu til 12 kúlur á stærð við valhnetur.
Þú getur rúllað þeim upp úr kakódufti, kókosmjöli, heslihnetuflögum, hörfræjum eða bara hverju því sem þér dettur í hug.
Geymist í kæli í 3-4 daga.
Please follow and like us: