Tælenskt kjúklingasalat
Kjúklingur Súpur og salöt

Tælenskt kjúklingasalat

2 kjúklingabringur
romaine kál, nokkur stór blöð, saxað
2 gulrætur, rifnar
1 mangó, skorið í litla teninga
1/2 búnt kóríander, saxað
1/2 búnt vorlaukur, skorinn smátt
70 g salthnetur, saxaðar

Salatdressing
2 tsk minched garlic, t.d. frá Blue dragon
½ tsk chilímauk, t.d. frá Blue dragon
2 msk soya sósa
2 msk edik
1 msk pálmasykur
1 msk safi úr lime (ca hálft lime)
1 msk ólífuolía
1/2 tsk fish sauce, t.d. frá Blue dragon
60 g hnetusmjör
60 ml vatn

—————–

Hitið vatn að suðu og látið kjúklingabringurnar út í vatnið. Sjóðið í 15-20 mínútur eða þar til kjúklingabringurnar eru fulleldaðar.

Takið úr pottinum og rífið eða skerið bringurnar niður.Setjið kjúklinginn og allt grænmetið saman í skál.

Gerið dressinguna með því að blanda hvítlauks og chilímauki saman við soyasósu, edik, sykur, límónusafa, olíu og fiskisósu. Hrærið vel saman. Bætið síðan hnetusmjöri og vatni saman við og blandið vel saman.

Hellið dressingunni yfir salatið rétt áður en það er borið fram og stráið söxuðum salthnetum út á salatið.


Please follow and like us: